Á þessari vefsíðu er að finna afrakstur af starfi stýrihóps sem mennta- og menningarmálaráðherra skipaði í tilefni af ályktun Alþingis um að Ísland skapi sér afgerandi lagalega sérstöðu varðandi vernd tjáningar- og upplýsingafrelsis. Á síðunni er að finna öll þau gögn og afurðir sem hann hefur unnið með og samið, ásamt niðurstöðum hópsins og fundargerðum allra funda hans. Þá má einnig finna þar afrit af verkefnavef hópsins.